Leita í fréttum mbl.is
Embla

Jólin

Dagurinn í dag var yndislegur. Það er alveg nóg af snjói og allt svo fallegt úti, ég algjörlega elska snjóinn. Í gærkvöldi fór ég í göngutúr og þá var að snjóa helling, ég horfði bara upp í himinn og gjörsamlega dáleidd, mér finnst þetta svo fallegt og töfrandi, ég er ekki hrifin af klaka og frosti en er ofboðslega hrifin af snjónum. Svo í morgun labbaði ég í vinnuna, einnig mikið úti í vinnunni enda æðislegt veður og fannst mér mjög gaman að fá að fylgjast með börnunum og ýta þeim niður litlar brekkur á snjóþotum, ég er alveg ótrúlega heppin og ánægð að vera í leikskólastarfi. Vonandi verður morgundagurinn jafn yndislegur og dagurinn í dag, ég mun allavega labba heim og úr vinnu og vonandi verður mikil útivera í vinnunni (ef veðrið er jafn gott og í dag). Svo kemur Júlía M. og Óskar L. í gistingu um kvöldið og það verður stuð, svo á sunnudaginn fæ ég hana Andreu Ýr lánaða og ætlum að bralla eitthvað skemmtilegt.

Mér hlakkar líka mikið til jólanna. Ég tók mig til um daginn og fór að pakka inn öllum þeim gjöfum sem börn fá frá mér (ættingjar, börn sem ég er að passa o.fl.) og er nú búin með allar barnapakkana. Ég mun samt ekki skreyta fullorðnu fyrr en í desember því ég á eftir að kaupa band og slaufur til að skreyta pakkana. Börnin rífa pakkana um leið en fullorðnu hægt og skoða betur hvernig pakkinn var skreyttur, líka gaman að dunda sér við það í rólegheitum með heitt kakó og piparkökur. Ég er byrjuð að horfa á jólamyndir, þó ekkert á fullu en horfði á "the grinch" áðan og kíkti aðeins á home alone 1.

Mér hlakkar ekkert lítið til að skreyta íbúðina í lok nóvember. Mér hlakkar / eða mig hlakkar ? get aldrei munað hvort það var - til jólanna. Ég er mikið jólabarn, og ekki má gleyma öllum fallegu jólaljósunum, svo litrík og falleg.Já, það eru góðir tímar framundan. Frostrósir í desember, jólin og nýtt ár svo. Ég er farin að geta borðað betur hægt og rólega og er loksins komin aftur undir 90 kg :) er ótrúlega ánægð með það. Verð vonandi skvísa um jólin. Í sömu fötunum og í fyrra, æðislegur rauður kjóll, leggins o.fl. :) christmas here i come.

kveðja, Alda B.


Mitt fyrsta blogg hér

Jæja þá er ég mætt hingað aftur, ég hef verið að blogga í heilt ár núna á bloggar og er enganveginn komin með leið á því kerfi, en það er alltaf eitthvað vesen, erfitt að komast inná síður og alltaf bilun í gangi, bloggaði 2x um daginn og vistaðist ekki, gufaði bara upp, er búin að gefast upp og komin á nýtt blogg bara. Ég er reyndar undafarið búin að blogga mjög lítið og hef lítinn áhuga fyrir því, allavega þá eru aðallega hér pælingar og draumar sem ég er að skrifa. Ég er ekkert að deila líðan hér nema þá ef það er jákvætt, er með sérsíðu fyrir það sem er aðeins fyrir mig.

Annars er ég dáldið snemma í "spennt fyrir jólin", nenni ekki hanna nýtt útlit í desember þannig lét jólaútlit núna. Svo er komin snjór, búin að versla 50& af jólagjöfunum og búin að pakka smá inn, ég hlakka til að pakka öllu inn, horfa á jólamyndirnar, skreyta, borða piparkökur, mandarínur, heitt kakó og fullt fullt fleira! er algjör jólabarn :)

Kær kveðja, Alda B.


Hellú¨!!:D

Á laugardag komu erna og þau í grillmat og kaka í eftirétt. Svo á sunnudaginn fór ég í afmæli og amma varð 70 ára, til hamingju amma mín besta. Svo á mánudaginn fór ég með Olgu og Aron og Magnús 2 og hálfs árs í sund í 2 tíma. Síðan fengum við okkur að borða og fórum svo á róló og ég fékk Andreu Ýr lánaða þá. Á þriðjudaginn fór ég að vinna frá 9-3 og svo sund um kvöldið. Í dag fór ég að vinna frá 9-3 og svo sund eftir vinnuna, kvöldið bara horfá þætti :-)

blogg :)

Miðvikudagur fór ég að vinna frá 9-3 :) fór svo að passa þrjár systur (2,5,9 ára) frá 19-02 að nóttu og það var mjög gaman :) og á fimmtudag var frí ! fór svo í sund í gær (föstudegi) og það var mjög nice. Einnig fór ég með mömmu og pabba í heimsókn til systur minnar sem býr í garðinum á fimmtudaginn :D! það var mjög gaman. Svo fengum við okkur að borða eftir heimsóknina. Í dag er ég að fara í sund og svo kemur systir mín og liðið í grillmat :D svo á morgun fer ég kannski í sund en fer svo í afmæli til ömmu sem á afmæli á morgun og verður 70ára, til hamingju elskan :*:)

en þetta eru einu fréttirnar í bili!

www.aldabg91.bloggar.is tilfinningar og líðan, pælingar....

Nokkrir dagar !

Á mánudaginn um morguninn leið mér illa (slöpp) svo fór ekki á námskeiðið, svo leið mér betur seinna um daginn. Fór til tannlæknis. Svo fór ég í sund með mömmu og veðrið var ÆÐI. Svo í dag fór ég að vinna frá 9-3 og fór svo með múttu í sund og veðrið frekar gott en ský inná milli. Svo fengum við okkur að borða (mæðradagsgjöfin til hennar) og fórum svo í bíó á myndina með Jennifer Lopez, hún var bara ágæt, langar ekki sjá hana á leigu allavega. Svo á morgun fer ég að vinna frá 9-3, ætla örugglega kíka aftur í sund :D! svo frí á fimmtudaginn í vinnunni. Helgin óákveðin.

Bæææ :)

TILKYNNING.

Ég er svoooo ástfangin upp fyrir haus (djók sagt samt) af bloggar kerfinu og langar ekki hætta þar þannig ég ætla breyta aðeins, ég er hætt að blogga á 123 en þangað koma samt myndir og hef sett þar myndir síðan 2007 og mun aldrei hætta þar með það, getið fengið lykilorðið með að senda mér skiló á ataksskvis_@hotmail.com. Ég ætla blogga HÉRNA um hvað ég geri dagsdaglega, vinna og þessháttar. En á bloggar held ég áfram að blogga um líðan mín, pælingar og það sem ég var vön að blogga þar :)

aldabg91.bloggar.is *

Og ég skil veeeeel ef þið eruð pirruð á mér, alltaf skipta hehehe en get heldur ekki hugsað mer að hætta blogga hér alveg :-)!

Langt blogg í boði! :þ

Ég rakst á síðu sem er orðin ansi fræg núna, yfir 300 manns búnir að kíkja á hana í dag. Það er um konu sem bloggar um geðspítala og hvernig starfsfólkið kemur fram við mann og þessháttar. Ég finn rosalega til með hvað hún hefur lent í. Þar sem hún tók það fram í einu blogginu að hún vildi nú ekki að síðan yrði svona "fræg" þannig ég ætla ekki birta linkinn hér. En það er eflaust ekki flókið að finna hana, var um hana á er.is og fleiri stöðum.

Er svo sammála öllu sem hún segir í blogginu. Ég er reyndar rosalega ánægð að ég hef aldrei orðið svona þunglynd að ég fari að íhuga sjálfsmorð, aldrei aldrei aldrei. Ég myndi heldur aldrei slasa mig viljandi eða skera mig, eins og margir hafa gert og ég hef meira að segja þekkt þannig manneskjur. Þekki jafnvel enn í dag mjög lítið hinsvegar. Ég hef bara verið þannig að ég grét örugglega daglega í nokkra mánuði eða vikur. Mér leið alltaf illa, ég fór samt út af og til en ég var nú samt oftast heima alla daga frá morgni til kvölds. Ég skrapp út bara um helgar eitthvað stutt og hitti stundum vinina um helgar. Hinsvegar hætti þetta allt í fyrra og það var frábært ár, þegar ég hugsa um það þá var það næstum fullkomið. Mér leið ótrúlega vel og upplifði eitthvað nýtt og spennandi. Mig hefði aldrei grunað að missa 12 kg myndi breyta mér svona mikið. Þó ég verði að viðurkenna með hreinskilni að ég er ekki þannig stödd núna. Ég græt aldrei lengur en ég er oft leið þó ég reyni að sýna það ekki mikið, er líka mjög einmana. Ég myndi segja að það var í nóvember sem allt breyttist. Ég átti nefnilega nokkra vini og við vorum öll oft að hittast og vorum búin að hittast öll af og til í kannski eitt ár. Allt í einu tók ég eftir að mér var ýtt úr hópnum, og þó það særði mig þá allavega hittust þau samt ótrúlega oft frá nóv-des og ég var komin með ógeð á þessu og var svo döpur og búin að særa mig helling. Einnig það að vera í rifrildi við vinkonu mína daglega var ekki það skemmtilegasta. Svo bara var ég komin með svo leið á þessu og ég mjög ólík þeim öllum (persónuleikinn) svo við slitum vinasambandinu í janúar. Ég rauninni sleit það við þau öll en átti bara vera tímabundið en svo ákvað vinkona mín að hún vildi hafa það til frambúðar. Ég fór alveg í gegnum "sorgartímabil" afþví áleit vinkonu mína eins og systir á tímabili. Hinsvegar er núna komin maí, 4 mánuðir síðan þetta gerðist og ég vil ekkert með þau hafa. Ég sakna þeirra ekkert. Ég er samt mjög einmana, þar sem ég á bara eina vinkonu eftir en hún er frábær en hittumst ekki oft. Ég reyni samt að vera jákvæð, ekki annað hægt ! svo það að fitna um 7,7 kg bætti bara bensín á eldinn... ef þið fattið hahahaha... og svo að kötturinn minn greindist með krabbamein og svæfðum hana... já, þetta er ekki búið að vera skemmtilegt ár. Hinsvegar er ég ánægð með næstu mánuði, ég er á skemmtilegu námskeiði og vinnu sem reyndar líkur í lok maí. Ég er komin í átak og er farin að léttast :) einnig að næstum uppáhaldsþátturinn minn er kominn aftur í sjónvarpið. Svo verður það útlanda í ágúst, ah ljúft líf. Og ekki má gleyma að ég eignaðist lítinn frænda í apríl og hann er auðvitað bara sætastur :)

Svo á ég mín persónuleg vandamál.. ég hata allt við mig næstum, hárið mitt sem krullast eins og krullupinni, augun sem vilja ekki eyeliner því verða svo lítil og ljót, mér finnst ég reyndar alveg flott þegar ég er með slétt hárið og máluð, en eftir að ég fitnaði til baka þá komin með enn meiri ógeð á sjálfri mér. En eins og ég sagði þá er ég farin að léttast aftur svo það er bara æðislegt, hlakka til að sjá vigtina fara niður. Svo kíki ég örugglega í sund í vikunni, ohhh þá kemur fallegi brúni liturinn og er þá ekki eins og lik. Ég var rosalega sæt og brún í fyrrasumar, og leið frábærlega, var þá 7 kg mjórri en núna, og ætla mér að vera helst minna í sumar, meina missa td 10 kg :-)

En neikvæðni dagsins? jæja ég nældi mér í 15-20 vírusa og talvan öll í steik ;) missi forritin mín, font, brushes og fleira!

Jákvæðni ? l-é-t-t-a-s-t :D

Jæja nóg í bili.

Kvef og hósti

Bloggstelpan mætt eina ferðina enn. Ég er enn veik, og get nú sagt með hreinskilni að mér líkar ekki við það að vakna upp á nóttunni með mikið kvef og klósettpappírinn ávallt við hlið mér. Ég vona að veikindin stoppi stutt við, þoli ekki að vera lasin um helgi, einmitt þegar manni langar að kíkja í heimsóknir og bara vera úti og svona. Svo er ég voða löt lasin og læt mömmu aðeins of mikið stjana við mig, afþví er oft búin að koma mér fyrir uppí sófa og hún stendur nálægt ískápnum og spyr hana þá að rétta mér eitthvað. En nóg um þessi litlu veikindi, ég vigtaði mig í gær og 400 grömm fóru af vigtinni á viku. Það er auðvitað ekkert rosalega gott en það er betra en ekkert. Ætlaði nú blogga slatta en get litlu lofað, þar sem ég er drulluslöpp og langar leggja mig aðeins, vaknaði snemma (kvefið vakti mig). Þannig það er voða lítið á dagskránni í dag, bara horfa á sjónvarpið, smá í tölvuna, lesa og leggja mig. Ég er alveg rosalega fúl þar sem ég ætlaði að gera eitt rosalega skemmtilegt í dag, en svona er þetta bara. Svo er mér illt í maganum, já illt í maganum, hósti, kvef, hiti og slappleiki. Rosalega skemmtileg helgi Wink. Heyrið, ætla fara lesa smá og athuga hitann!

Ég blogga aftur seinna brðalega, lengra blogg þá!

Kær kveðja, Bloggarastelpan.


Smá blogg aftur hihi..

Veit að sumir hafa fylgst með mér á barnalandi þar sem ég var með átaksíðu. Ég veit líka að sum ykkar vita að ég náði af mér 12 kg í fyrra og leið frábærlega. Svo gerðist alveg nokkuð í lífi mínu, eins og ég missti næstum alla vinina og ég þurfti að svæfa köttinn minn vegna þess að hún fékk krabbamein. Jæja ég ætla vera hreinskilin og segja að átakið gengur mjög illa, alltaf þegar ég fer af stað þá kemur eitthvað uppá, svo er ég ekki nógu sterk að fara í átak aftur, gefst svo fljótt upp. Ég er reyndar komin í átak núna og það er að fara ganga vel en dáldið seint því ég er búin að bæta á mig næstum öllu sem ég missti.... allavega meira en helming. Ég er auðvitað mjög leið yfir því, lokaði síðunni minni smátíma og ætla opna hana um leið og ég er komin undir 90 kg aftur, þá kemst upp stoltið mitt aftur og þá þori ég að blogga á síðuna og halda loksins áfram. Ég fer einmitt til útlanda í ágúst og langar meira en allt að líta mjög vel út þá, ég vil ekki vera enn eftir að missa slatta því þá er svo erfitt að versla föt, ef þau verða of stór um leið. En eins og ég segi þá er ég ekki hætt, ég er komin aftur af stað og það mun ganga vel, ég get aldrei lofað þar sem ég hef oft svikið það við sjálfa mig en ég mun að sjálfsögðu reyna.

Annars fyrir utan það hef ég það BARA ágætt. Ég auðvitað væli minna (vælublogg, ekki gráta) og er jákvæðari og brosmildari en það þýðir ekki að mér líði geðveikt vel. Ég er bara reyna hætta vera svona neikvæð, það tók á að fitna um mörg kg (mínu mati mörg kg) en ég ætla ná þeim af mér aftur svo ætla ekki leyfa fýlunni að stoppa við, þessi kg munu ekki vera til frambúðar, hell no. Það er ótrúlega gaman oft í vinnunni, mér finnst leikskólastarfið æði. Auðvitað tekur það á mann og maður verður að vera þolinmóður og geta verið strangur. Það er sérstaklega erfitt að byrja á nýjum stað, hvort sem það er tímabundið eða ekki... er búin að vinna síðan 15. apríl og það er erfitt að fá þau til að hlýða mér, kannski ég þurfi að læra vera strangari. Ég lagði mig í gær og vaknaði svo drulluslöpp, ég hélt þetta væri ýmindun í mér... enda oft búin að vera slöpp á árinu en aldrei neitt oft hiti. Svo ég mætti drulluslöpp í vinnu í morgun og entist alveg til 15 en ég vinn það lengi, fór heim og tralalala komin með hita, ekki ýmindun í mér. Er alveg hundsfúl því ætlaði í langan göngutúr og hjóla og svo er skemmtilegt um að vera á laugardaginn, en ekki viss hvort ég megi segja það á opnu bloggi.

Þannig já svona er ég stödd núna, ég er feitari, veik, þreytt, einmana og leið en samt er ég jákvæð, ekki annað hægt ;D

Smá blogg..

Halló LoL

Helgin var frábær. Ég fór í kolaportið, (hamborgarafrabikkuna?) sem var alveg ágæt bara. Fór á kaffihús, fór aftur út að borða næsta dag. Fór í kringluna, hagkaup, elko og fleiri búðir. Keypti samt varla neitt, gloss bara og man ekki meir en náði einhvernveginn að eyða samt yfir 20 þúsund frá 1. maí - 3. maí Blush hihi fæ samt smá pening núna í maí svo það spjarast allt, nei ég kann sko EKKI að spara hahahaha. Ég hef svo bara verið að vinna og gengur allt vel þar, hætti þar í næstum lok maí. Mér dauðlangar að sofa út, er að vakna snemma 5 daga vikunnar og er bara dauð úr þreytu, hjálpar ekki einu sinni að leggja mig í klukkutíma eftir vinnu, er alltaf þreytt og sofnað kl 11.30/12.00 síðustu 2-3 nætur. Ég hef það annars frábært eiginlega bara Grin einmana en ekkert meira en venjulega, minna eftir að ég byrjaði að vinna á leikskólanum smátíma. Ótrúlega nice að hafa mömmu svona mikið heima, en hún fór í aðgerð 5. apríl (mánuði síðan) og byrjar að vinna einhverntímann í maí. Ég er ótrúlega ánægð með að hafa fengið annan lítinn frænda og hann varð tveggja vikna í gær, dafnar vel og er ótrúlega sætur. Systkini hans gistu hjá okkur frá mánudegi - þriðjudags og það var ótrúlega gaman að hafa þau, fyrir utan að ég þurfti að vinna á þriðjudeginum en fékk samt að sjá þau áður en þau fóru heim Tounge. Eins og ég sagði með síðasta bloggi þá hef ég minnkað tölvunotkunina, gleymi mér stundum og er 2 tíma í einu en er að reyna passa vera bara hámark 3 tíma á dag, helst minna að sjálfsögðu, ekki nema ég hef mikla ástæðu til að vera í tölvunni. Auðvitað vil ég heilsa uppá fólkið á msn og facebook reglulega. Netið er mitt eina líf til að eiga samskipti við fólk ! ég meina, ég hitti aldrei neitt fólk, æj ef þið skiljið.. vini og þessháttar... mun ekkert hitta vinkonu mína á næstu dögum / vikum. En já, annars hef ég það alveg ágætt bara. Sakna Jasmínar mjög mikið, en veit henni líður vel hjá guði. Hún varð 12 ára þann 27. apríl, oh fallega dúllan mín... þið sem vitið ekki þá greindist hún með krabbamein 29. mars og þurftum að svæfa hana 31.mars. Hún var hluti af hjarta mínu Heart.

Bless í bili !


Næsta síða »

Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband